Punktar fyrir brottför

Hér eru nokkrir punktar til allra fyrir brottför.

Rútan fer frá Fram kl.04:00 aðfararnótt mánudagsins, mæting ekki seinna en kl.03:45 niðri í Fram. Allir sem eiga Fram galla eða Fram peysu vera í þeim á mánudaginn,svo auðveldara er að finna alla og halda hópinn.

Öll börn eru beðin um að skilja GSM síma eftir heima, það er mjög dýrt að taka þá með til Svíþjóðar.

Foreldrar eru beðnir um að vera ekki að hringja að nauðsynjalausu í fararstjóra og þjálfara, þar sem símtöl í íslenska síma erlendis eru ansi dýr og getur kostað fararstjóra mikið. 

ENGAR FRÉTTIR ERU GÓÐAR FRÉTTIR Smile

Gott er að allir hafi með sér nesti fyrir ferðalagið, samlokur, ávexti og svoleiðis, ekki drykki þar sem ekki má fara með þá inn á flugvöllinn. Búið er að kaupa samlokur fyrir alla til að borða í flugvélinni, en samt gott að hafa með sér eitthvað í töskunni, þar sem ferðalagið tekur þó nokkurn tíma.  Eftir að allir hafa komið sér fyrir í skólanum verður farið að borða og svæðið skoðað.

Allir leikir og úrslit verða sett inn á þessa síðu að kvöldi, svo allir geti fylgst með, fyrstu leikir eru á miðvikudaginn hjá öllum liðum.

Þegar það er komið á hreint hvaða lið spilar sem Fram1,2 og svo framveigis, þá set ég þær upplýsingar inn á síðuna, nöfn keppenda, leikjaskipulag og allar þær upplýsingar sem allir bíða spenntir eftir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ingunn Jóna Gísladóttir

Höfundur

Ingunn Jóna Gísladóttir
Ingunn Jóna Gísladóttir

Færsluflokkar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • P7070032
  • P7070020
  • P7070018
  • P7070013
  • P7070009

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband